23.–24. janúar 2027
- Dagsetning
- 23.–24. janúar 2027
- Staður
- Reykjavík
- Verð
- 69.000 kr.
- Lengd
- 2 dagar
- Kennslumál
- íslenska
- Hámarksfjöldi
- 12
02Námskeiðið
Hvað ertu í raun að finna þegar þú snertir líkamann? Hvernig birtist hreyfing, flæði og svörun líkamans undir höndunum?
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja þróa skynjun sína og læra að vinna með líkamann á dýpri og markvissari hátt. Áherslan er ekki á að læra fyrirfram ákveðna tækni heldur að skilja hvað er að gerast í líkamanum og hvernig hægt er að fylgja því sem birtist hverju sinni.
Á námskeiðinu er unnið með aðferðir úr Craniosacral, Bowen, orkuvinnu, Heart Center Therapy (Chikly nálgun), sogæðameðferð og Reiki. Þessar nálganir eiga það sameiginlegt að byggja á skynjun, nærveru og því að vinna með svörun líkamans frekar en að reyna að stjórna henni.
Meðal þess sem unnið er með á námskeiðinu er:
Í cranio hluta námskeiðsins er sérstaklega skoðað hvernig finna má og fylgja craniosacral taktnum, hvernig breytingar birtast í vefjum og hvernig líkaminn bregst við þegar takturinn hægist eða stöðvast.
Kennslan byggir á því að hver og einn þrói sína eigin skynjun. Ekki er verið að kenna eina rétta leið heldur skapa rými þar sem þátttakendur læra að treysta eigin upplifun og skilningi.
Námskeiðið hentar:
Hvort sem þú hefur mikla reynslu eða ert að stíga fyrstu skrefin í líkamsvinnu getur þetta námskeið veitt þér nýja sýn á snertingu, skynjun og samspil líkamans.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fari heim með dýpri skynjun, aukinn skilning á hreyfingu og flæði líkamans og meira traust á eigin innsæi og dómgreind í vinnu með fólk.
Þetta er ekki námskeið um að læra fleiri aðferðir.
Þetta er námskeið um að sjá og finna betur það sem þú ert nú þegar að vinna með.
Á námskeiðinu koma einnig gestakennarar og meðferðaraðilar með reynslu úr ólíkum meðferðarformum og kynna sínar nálganir. Þannig fá þátttakendur innsýn í fjölbreyttar leiðir og breiðari sýn á líkamsvinnu og meðferð.
03Kennararnir
Efni kemur þegar endanlegar upplýsingar berast.
Reykjavík · 23.–24. janúar 2027
Skrá mig04Lotur
Þessi lota er staðfest. Engin önnur lota er staðfest.
Reykjavík · 23.–24. janúar 2027
Skrá mig05Skráning
Reykjavík. 23.–24. janúar 2027. 69.000 kr.
Reykjavík · 23.–24. janúar 2027
Skrá mig06Akademían