NámskeiðBandvefur, orkubrautir og örvefur
Námskeið
Bandvefur, orkubrautir og örvefur
Með Amichay Saller-Fischbach
Nýtt sjónarhorn á líkamann – nýir möguleikar í meðferðarvinnu

02Aðalkynning
Hvað ef ör eftir skurðaðgerð er meira en það sem við sjáum á yfirborðinu? Hvernig geta ör, bandvefur og orkubrautir líkamans tengst verkjum, spennu og líkamlegri eða tilfinningalegri líðan?
Á þessu einstaka fjögurra daga námskeiði leiðir Amichay Saller-Fischbach þátttakendur inn í heim kínverskrar læknisfræði, orkubrauta og örvefsmeðferðar og sýnir hvernig hann samþættir þessa þekkingu við bandvefsmeðferð og aðra líkamsvinnu.
Sérstök áhersla verður lögð á ör eftir skurðaðgerðir, einkum keisaraskurði, og hvernig þau geta tengst líkamlegri og tilfinningalegri líðan kvenna.
Námskeiðið sameinar fræðslu, sýnikennslu og verklegar æfingar þar sem þú lærir að tengja þessa þekkingu við eigin meðferðarvinnu.
Reykjavík · 16.–19. apríl 2027 · 4 dagar
105.000 kr. til og með 1. janúar 2027
120.000 kr. frá 2. janúar 2027
Staðfestingargjald 10.000 kr. er innifalið í heildarverðinu.
03Námskeiðið
Þegar orkubrautir, bandvefur og ör mætast
Líkaminn er flókin heild þar sem ólíkir vefir, líffæri og starfsemi tengjast með margvíslegum hætti.
Í kínverskri læknisfræði er litið á orkubrautir sem kerfi sem tengir saman ólík svæði líkamans, líffæri og tilfinningalega þætti. Samkvæmt þeirri hugmyndafræði geta truflanir í flæði Qi haft áhrif á jafnvægi líkamans.
Amichay hefur um árabil unnið með tengsl bandvefsmeðferðar, kínverskrar læknisfræði og japanskra nálastungna. Á námskeiðinu sýnir hann hvernig þessi þekking getur gefið meðferðaraðilum nýja möguleika við mat, val á handtökum og einstaklingsbundna meðferðarvinnu.
Markmiðið er ekki að búa til nýtt meðferðarkerfi, heldur að dýpka skilning þátttakenda og bæta nýjum sjónarhornum við þá þekkingu sem þeir hafa þegar.
04Kínversk læknisfræði
Orkubrautir líkamans – lykill að nýjum skilningi
Hvernig tengjast orkubrautir líffærum, tilfinningum og mismunandi svæðum líkamans? Og hvernig getum við nýtt þá þekkingu til að velja markvissari meðferðarhandtök?
Á námskeiðinu er farið ítarlega yfir undirstöður kínverskrar læknisfræði og hvernig þær tengjast bandvefsvinnu.
Þátttakendur kynnast:
- Yin og Yang.
- Qi og Jing.
- Fimm þáttum kínverskrar læknisfræði.
- Tólf meginorkubrautum, legu þeirra og tengslum við líffæri og tilfinningar.
- Nálastungupunktum og tengslum þeirra við sérhæfð meðferðarhandtök.
- Hvernig hægt er að nýta þessa þekkingu við einstaklingsbundið mat og meðferð.
Amichay sýnir hvernig hægt er að velja handtök af meiri nákvæmni og aðlaga meðferð að þörfum hvers einstaklings.

05Ör og bandvefur
Ör eftir skurðaðgerðir – meira en það sem sést á yfirborðinu
Ör segja sögu. Þau geta orðið til eftir slys, áverka eða skurðaðgerðir og haft áhrif á vefi löngu eftir að húðin hefur gróið.
Örvefur getur tengst breytingum á hreyfanleika, næmi og spennu í nærliggjandi vefjum.
Í þeirri nálgun sem Amichay kennir eru ör einnig skoðuð sem möguleg truflunarsvið í orkubrautakerfi líkamans.
Samkvæmt þeirri nálgun hindrar örið flæði Qi í vefnum og eftir orkubrautinni. Fyrir framan örið getur Qi staðnað og safnast fyrir, en fyrir aftan það nær Qi ekki að berast. Áhrifin geta því komið fram bæði þar sem örið er og fjarri því, eftir tengdri orkubraut.
Amichay fjallar einnig um rafeiginleika örvefs og áhrif þeirra á orku- og taugaflæði. Í kennslu hans kemur fram að greint hafi verið frá því að örvefur hafi aðra rafeiginleika en heil húð, sem geti haft áhrif á staðbundna taugaleiðni og lífræn orkuboð.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mat á sýnilegum örum og dýpri vefjabreytingum.
- Ör eftir skurðaðgerðir og áverka.
- Ör eftir kviðsjáraðgerðir.
- Mismunandi gerðir öra: rýrnunarör (niðurgrafin ör), ofvaxin ör (hypertrophic), ofholdgunarör (keloid) og samdráttarör, sem geta skert hreyfanleika, einkum í liðum.
- Algeng ör og þær orkubrautir sem þau snerta, meðal annars eftir botnlangatöku, gallblöðrutöku, legnám, skjaldkirtilsaðgerð, mjaðmaaðgerð, liðspeglun á hné og brjóstnám.
- Flokkun örvefs eftir staðsetningu og tengdum orkubrautum.
- Örvef sem mögulegt truflunarsvið.
- Meðferðarnálgun Amichay við vinnu með örvef á mismunandi dýptum.
Í kennsluefni sínu tengir Amichay einkenni við hvert ör á þrennan hátt: staðbundið við örið, eftir orkubrautinni og út frá tengslum orkubrautanna samkvæmt kenningunni um fimm þætti. Dæmi úr kennsluefni hans:
- Skjaldkirtilsör snertir getnaðaræð (Renmai) og magabraut. Einkenni sem hann nefnir eru meðal annars kökkur í hálsi og hæsi.
- Mjaðmaör snertir gallblöðrubraut. Einkenni sem hann nefnir eru meðal annars verkir í mjöðm og utanvert á hné og ökkla.

06Sérstök áhersla
Keisaraskurðarör – sérstök áhersla á líðan kvenna
Keisaraskurður er stór skurðaðgerð sem getur haft áhrif á fleiri vefjalög en þau sem sjást á yfirborðinu.
Þótt skurðurinn hafi gróið vel geta sumar konur fundið fyrir togtilfinningu, spennu, breyttri skynjun eða óþægindum á skurðsvæðinu.
Fyrir aðrar getur reynslan af keisaraskurði einnig tengst sterkum tilfinningum, sérstaklega ef fæðingin fór öðruvísi en þær höfðu vænst.
Á námskeiðinu mun Amichay sérstaklega fjalla um ör eftir keisaraskurði og hvernig hann nálgast þau út frá þekkingu sinni á örvef, orkubrautum og tengslum líkama og tilfinninga.
Farið verður yfir:
- Mat á örvef eftir keisaraskurð.
- Vinnu með yfirborð örsins og undirliggjandi vefjalög.
- Tengsl örvefs við spennu, næmi og hreyfanleika.
- Láréttan og lóðréttan keisaraskurð. Lárétti skurðurinn getur, eftir breidd, snert flestar orkubrautir á framanverðum kvið: getnaðaræð (Renmai) og maga-, milta-, lifrar- og nýrnabraut og stundum gallblöðrubraut. Lóðrétti skurðurinn snertir getnaðaræð (Renmai).
- Einkenni sem Amichay tengir keisaraskurðarörum í kennslu sinni. Staðbundið nefnir hann tíðaverki, óreglulegan tíðahring, meltingartruflanir og verki í grindarbotni, nára, mjöðm og mjóbaki. Eftir orkubrautunum nefnir hann bjúg í fótleggjum, verki innanvert á hné og þreytu.
- Staðsetningu örsins í samhengi við orkubrautir.
- Hvernig taka má mið af líkamlegri og tilfinningalegri upplifun konunnar.
Þessi hluti námskeiðsins getur verið sérstaklega áhugaverður fyrir meðferðaraðila sem vinna með konum eftir meðgöngu, fæðingu og skurðaðgerðir.
07Heildræn nálgun
Örvefur, tilfinningar og tengsl líkama og hugar
Í hugmyndafræði kínverskrar læknisfræði eru líffæri, orkubrautir og tilfinningar tengd saman.
Amichay fjallar um hvernig örvefur getur, samkvæmt þeirri nálgun sem hann kennir, tengst truflunum í orkubrautakerfinu og hvernig líkamleg og tilfinningaleg upplifun getur fléttast saman.
Þátttakendur kynnast:
- Tengslum örvefs við líffærakerfi og tilfinningamynstur.
- Örvef sem mögulegu truflunarsviði.
- Hvernig fyrri áföll og tilfinningaleg reynsla eru skoðuð í samhengi við líkamlega spennu.
- Mikilvægi þess að líta á einstaklinginn sem heild.
Amichay bendir á að vinna með ör hafi sterk áhrif á líkama, huga og sál og geti vakið tilfinningaviðbrögð, bæði meðan á meðferð stendur og eftir hana.
08Fræði og framkvæmd
Frá fræðilegri þekkingu til verklegrar meðferðar
Kennslan sameinar fræðilega umfjöllun, sýnikennslu, verklegar æfingar og klínísk dæmi.
Amichay sýnir hvernig hægt er að tengja þekkingu á orkubrautum, nálastungupunktum og örvef við raunverulega meðferðarvinnu.
Þátttakendur æfa sig í að:
- Finna og staðsetja mikilvæga nálastungupunkta.
- Skoða tengsl þeirra við sérhæfð meðferðarhandtök.
- Meta örvef og staðsetningu hans.
- Velja markvissari handtök út frá mati.
- Nýta klínísk dæmi við gerð einstaklingsbundinnar meðferðaráætlunar.
Amichay kennir einnig eigið meðferðarferli við ör. Meginhugsunin er að draga til heilbrigt Qi og beina því að því svæði sem skortir Qi vegna örsins.
Farið verður yfir:
- Undirbúning með BRM eftir staðsetningu örsins: efra BRM fyrir ör á brjósti, hálsi, höfði, andliti, handlegg og hendi, og neðra BRM fyrir ör á kvið, mjóbaki, mjöðm, læri, fótlegg og fæti. Gæta þarf varúðar í skömmtun og örva aðeins skref fyrir skref, því hver skjólstæðingur þarf sína eigin örvun.
- „Scar stopper“: Mjúkar bandvefshreyfingar á báðum endum örsins, í gagnstæðar áttir.
- „Zipper“-tækni: Mjúkar bandvefshreyfingar til skiptis til hægri og vinstri eftir endilöngu örinu, þar til farið hefur verið yfir allan örvefinn.
- Ör eftir kviðsjáraðgerðir („sýndarör“): þreifað er eftir hertum vef frá innkomustöðum áhaldanna, og ferill örsins í djúpvefnum er teiknaður á húðina áður en unnið er með hann.
Markmiðið er að þátttakendur fari af námskeiðinu með nýja þekkingu, aukinn skilning og fleiri verkfæri fyrir eigin meðferðarvinnu.

09Myndband
Kynntu þér Amichay og nálgun hans
Hvað felst í því að tengja saman ólíkar meðferðarnálganir og skoða líkamann frá nýju sjónarhorni?
John Wilks ræðir við Amichay Saller-Fischbach um orkubrautir, ör og hvernig hann vinnur með örvef í bandvefsmeðferð.
Horfa á myndbandið10Markhópur
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað meðferðaraðilum sem vilja víkka faglegan sjóndeildarhring sinn og bæta nýjum möguleikum við þá þekkingu sem þeir hafa þegar.
Það getur meðal annars höfðað til:
- Meðferðaraðila sem vinna með bandvef.
- Nuddara og annarra sem vinna með líkamsmeðferð.
- Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðila.
- Sjúkraþjálfara og annarra heilbrigðisstarfsmanna sem vinna með líkamsmeðferð.
- Meðferðaraðila sem vinna með konum eftir meðgöngu, fæðingu eða skurðaðgerðir.
- Fagfólks sem hefur áhuga á kínverskri læknisfræði, orkubrautum og heildrænni nálgun.
Ekki er gerð krafa um fyrra nám í bandvefsmeðferð eða þekkingu á kínverskri læknisfræði. Þátttakendur þurfa hins vegar að hafa viðeigandi bakgrunn í meðferðarvinnu.

11Kennarinn
Amichay Saller-Fischbach
Kennari
- Amichay Saller-Fischbach er Heilpraktiker í Þýskalandi og rekur stofu fyrir asíska læknisfræði og japanskar nálastungur í Karlsruhe.
- Hann hefur menntun í kínverskri læknisfræði og japönskum nálastungum og er einnig Bowtech-meðferðaraðili.
- Amichay hefur þróað námskeið þar sem hann tengir saman þekkingu sína á kínverskri læknisfræði, orkubrautum, nálastungupunktum og Bowen-meðferð.
- Hann hefur kennt endurmenntunarnámskeið fyrir meðferðaraðila í nokkrum Evrópulöndum og áður kennt á Íslandi.
- Kennsla hans einkennist af því að tengja fræðilega þekkingu við verklega vinnu og klíníska reynslu.
12Skráning
Skráning og verð
- Námskeið
- Bandvefur, orkubrautir og örvefur
- Kennari
- Amichay Saller-Fischbach
- Staður
- Reykjavík
- Dagsetning
- 16.–19. apríl 2027
- Lengd
- Fjögurra daga námskeið.
- Verð
- 105.000 kr.
- Kennslumál
- Kennsla fer fram á ensku.
- Skráning
- Opin
105.000 kr.
Þar af 10.000 kr. staðfestingargjald; eftirstöðvar 95.000 kr.
- Til og með 1. janúar 2027
- 105.000 kr.Núverandi verð
- Frá 2. janúar 2027
- 120.000 kr.
Þar af 10.000 kr. staðfestingargjald; eftirstöðvar 110.000 kr.
