NámskeiðBBNBBN1

Fyrsta stig

BBN1Færri hreyfingar — meiri nákvæmni.

Matt East

Fyrsta skrefið í BBN-nálguninni — skýr, verkleg og tilbúin til notkunar í daglegri meðferðarvinnu.

BBN1Akureyri 5.–7. febrúar 2027 · Reykjavík 8.–10. febrúar 2027 · 80.000 kr.

Akureyri · 5.–7. febrúar 2027

Skrá mig á Akureyri

Reykjavík · 8.–10. febrúar 2027

Skrá mig í Reykjavík
Kennari útskýrir hálsferð (The Neck Procedure) fyrir þátttakendum á BBN-námskeiði

02Markhópur

Fyrir hverja?

Námskeiðið er hugsað fyrir nuddara, sjúkraliða, sjúkraþjálfara og aðra starfandi meðferðaraðila sem vilja bæta líkamslestur og samþætta markvissa BBN-nálgun við núverandi starf.

  1. 01Sjúkraþjálfarar og sjúkraliðar. Tækni og rammar sem styðja klíníska ákvarðanatöku og örugga innleiðingu.
  2. 02Nuddarar. Sveigjanleg BBN-nálgun sem bætir við núverandi starf án þess að flækja meðferðina.
  3. 03Starfandi meðferðaraðilar. Fyrir fagfólk sem vill bæta við verkfærum sem nýtast í daglegri meðferðarvinnu — með færri en markvissari inngripum.
  4. 04Fyrstu skrefin í líkamsvinnu. Fyrir þá sem vilja byggja traust á markvissri snertingu — án fyrri reynslu af BBN-nálgun.

02Fyrsta stig

Hvað er BBN1?

Skoða hvað BBN er →

Þú lærir að finna hvar spennan liggur og losa hana með nákvæmum hreyfingum. Nálgunin er blíð: þú vinnur með líkamanum, ekki á móti honum.

Skýrir rammar og tækni sem hægt er að samþætta inn í klínískt starf — hvort sem þú notar eina markvissa hreyfingu eða byggir upp lengri vinnu.

Fyrri reynsla af BBN-nálgun er ekki forsenda.

Þetta færðu út úr námskeiðinu

  1. 01Finna hvar spennan liggur og lesa svörun líkamans
  2. 02Vinna markvisst með bandvef og spennumynstur
  3. 03Velja eina eða nokkrar BBN-hreyfingar þegar það á við
  4. 04Samþætta BBN-nálgunina við núverandi meðferðarstarf

“Færri hreyfingar — meiri nákvæmni.”

03Námið

Hvað lærir þú?

Greining, líkamslestur og hagnýt tækni — tengt beint við verklega æfingu.

  1. 01

    Líkamslestur í meðferð

    Að lesa viðbrögð líkamans og velja næsta skref af öryggi — ekki eftir föstu verklagi.

  2. 02

    Bandvef og spennumynstur

    Skilningur á samspili bandvefs, vöðva og taugakerfis — og hvernig á að vinna með þau saman.

  3. 03

    Færri en markvissari hreyfingar

    Oft nægir ein eða nokkrar nákvæmar hreyfingar til að kalla fram svörun líkamans — þegar það á við.

  4. 04

    Samþætting BBN-nálgunar

    Hvernig velja má eina eða nokkrar BBN-hreyfingar og flétta þær inn í þá meðferð sem þú veitir nú þegar.

04Mat

Mat og greining í framkvæmd

  1. 01

    Mat og greining

    Á BBN1 kennir Matt East þátttakendum að meta samhverfu, hreyfingu og svörun líkamans og láta matið leiða val á BBN-hreyfingum.

  2. 02

    Greiningarhugsun

    Í kennslunni er einnig unnið með greiningarhugsun Graham Pennington um mat og líkamslestur. Hér er sýnt dæmi um greiningarhugsun Graham Pennington um mat á samhverfu, hreyfingu og svörun líkamans, sem þátttakendur æfa á BBN1 undir leiðsögn Matt East.

  3. 03

    Sérstakur hluti BBN

    Aðferðin er sérstakur hluti af BBN-nálguninni og er ekki hluti af hefðbundnu Bowen-námi.

Akureyri · 5.–7. febrúar 2027

Skrá mig á Akureyri

Reykjavík · 8.–10. febrúar 2027

Skrá mig í Reykjavík

06Þrír dagar

Hvernig er kennt?

Verkleg kennsla með sýnikennslu, æfingum og endurgjöf frá kennara.

  1. 01

    Sýnikennsla, æfing og endurgjöf

    Áhersla er lögð á sýnikennslu, æfingar og endurgjöf frá kennara.

  2. 02

    Þrír dagar

    BBN1 er þriggja daga verklegt námskeið.

08Lykilhugmynd

Minna er meira

BBN getur verið ein eða nokkrar markvissar hreyfingar — ekki löng, fyrirfram ákveðin meðferðarrútína.

Áherslan er á að velja réttar hreyfingar á réttum tíma og samþætta þær inn í þá meðferð sem þú veitir nú þegar, þegar það á við.

09Kennarinn

Matt East

Sjúkraþjálfari · líkamsvinna og Bowen nálgun

  • Matt East er breskur sjúkraþjálfari með yfir 25 ára klíníska reynslu. Nálgun hans er samþætt og byggir á samspili taugakerfis, hryggjar, bandvefs og hreyfingar, með áherslu á að skilja hvernig líkaminn bregst við og aðlagast álagi.
  • Hann kennir BBN1 og BBN2 og leggur áherslu á greiningu og verklega færni sem þátttakendur geta notað strax í eigin starfi.

Skoða kennara →

10Lotur

Hagnýtar upplýsingar

Kennslufyrirkomulag
Verkleg kennsla með sýnikennslu, æfingum og endurgjöf frá kennara.
Kennslutímar
Kennsla er að jafnaði frá kl. 09:00 til um kl. 17:00. Fyrsta námskeiðsdag hefst skráning þátttakenda kl. 08:30.
Kennslumál
Kennsla fer fram á ensku.
Hámarksfjöldi
20 þátttakendur
Hádegishlé
Yfirleitt er gert um 60 mínútna hádegishlé. Lengd þess getur þó breyst lítillega og er fyrirkomulagið ákveðið í samráði við nemendur.
Hvað þarf að taka með
Glósubók. Þægilegur fatnaður sem hentar verklegri kennslu. Handklæði eða teppi fyrir verklega vinnu.

11Lotur

Næstu BBN1 námskeið

BBN1

Akureyri

5.–7. febrúar 2027

80.000 kr.

Til og með 30. nóvember 2026
80.000 kr.Núverandi verð
1.–31. desember 2026
85.000 kr.
Frá 1. janúar 2027
90.000 kr.
Skrá mig á Akureyri

BBN1

Reykjavík

8.–10. febrúar 2027

80.000 kr.

Til og með 30. nóvember 2026
80.000 kr.Núverandi verð
1.–31. desember 2026
85.000 kr.
Frá 1. janúar 2027
90.000 kr.
Skrá mig í Reykjavík

Staðfestingargjald er 15.000 kr. Gjaldið er hluti af námskeiðsgjaldinu og dregst frá eftirstöðvum.

12Næsta stig

BBN2

BBN2 er framhald af BBN1.

Akureyri · 5.–7. febrúar 2027

Skrá mig á Akureyri

Reykjavík · 8.–10. febrúar 2027

Skrá mig í Reykjavík