NámskeiðBMS

Námskeið

Body Mind Stress Control (BMS)

með Sjra Bleijlevens

Einfaldar, áhrifaríkar og öflugar aðferðir

LÍKAMI · HUGUR · TILFINNINGAR · ORKA · JAFNVÆGI

BMSReykjavík · 30. október – 1. nóvember 2026 · 3 dagar · 75.000 kr.

Námskeiðinu er lokið. Næsta lota verður kynnt síðar

Olía hellt í lófa við meðferð.

02Námskeiðið

Heildræn vinna með líkamann

Á þessu þriggja daga verklega námskeiði kynnir Sjra Bleijlevens þátttakendum Nuad Thai, hefðbundna búddíska lækningalist, og kennir aðferðir til að vinna með líkamann sem heild.

Kenndar eru einfaldar, áhrifaríkar og öflugar aðferðir þar sem meðal annars er unnið með þrýsting, mjúka snertingu og rúllandi hreyfingar.

Unnið er markvisst frá höfði og niður eftir líkamanum, með bol, handleggi og fótleggi.

Áhersla er lögð á tengsl líkama, hugar, tilfinninga og orku og hvernig snerting, nærvera og næm skynjun geta hjálpað okkur að nema viðbrögð líkamans og laga vinnuna að hverjum og einum.

Námskeiðið er opið öllum og ekki er gerð krafa um fyrri reynslu.

03Efnið

Lærðu verklegar aðferðir til að vinna með allan líkamann

  • Höfuð, háls og axlir
  • Hendur og handleggir
  • Kviðarhol og innri líffæri
  • Orkubrautir líkamans
  • Fótleggir og fætur
Sjra Bleijlevens

04Kennarinn

Um Sjra Bleijlevens

Sjra Bleijlevens

  • Sjra Bleijlevens hefur áratuga reynslu af líkamsvinnu og austrænum lækningalistum, þar á meðal Nuad Thai og Chi Nei Tsang.
  • Kennsla hans byggir á víðtækri verklegri reynslu og einkennist af skýrri, jarðbundinni og hagnýtri nálgun.

Skoða kennara →

„Meiri snerting, meiri nærvera, meiri lífskraftur.“ — Sjra Bleijlevens

05Lota

Staðfest lota

3 dagar. Kennsla á ensku. 75.000 kr.

Dagsetning
30. október – 1. nóvember 2026
Staður
Reykjavík
Lengd
3 dagar
Kennslumál
Enska
Verð
75.000 kr.
Kennari
Sjra Bleijlevens
Föstudagur 30. október
18:30–22:00
Laugardagur 31. október
12:15–19:00
Sunnudagur 1. nóvember
09:00–16:30

06Skráning

Lokið

Námskeiðinu er lokið. Næsta lota verður kynnt síðar